Að tilnefna á ný til víglsubiskupskjörs í Skálholti

Á fundi kjörstjórnar þjóðkirkjunnar 11. desember 2017 var tekin ákvörðun um að ógilda bæði tilnefninguna sem fram fór í ágúst sl. og kosninguna sem fram fór í haust.  Formaður kjörstjórnar fór á fund kirkjuráðs 12. desember 2017  og kynnti niðurstöðu kjörstjórnar fyrir kirkjuráði og lagði til nýja dagsetningu varðandi kosninguna, sem kirkjuráð samþykkti. 

Því liggur fyrir að kjörskrá verður lögð fram 19. janúar 2018.

Tilnefning hefst á hádegi 2. febrúar 2018 og lýkur á hádegi 7. febrúar 2018. Þá mun liggja fyrir, þau þrjú nöfn sem kjósa skal um, en útsending kjörgagna verður 9. mars 2018 og síðasti skiladagur verður 21. mars 2018. Atkvæði verða talin miðvikudaginn 28. mars 2018.

Ég ætla að sækjast eftir tilnefningu presta og djákna og síðan í kjölfarið að leita eftir stuðningi amk 500 kjörmanna svo ekki þurfi að kjósa á ný. Tilnefning er ekki vís og því þá síður kjörið. Enn á ný gefst tækfæri til að tilnefna og síðan kjósa á ný.

Og fólkið spyr kannski af hverju þetta þarf að fara allt í gagn á ný. Ástæðan er einföld. Kjörnefndarmenn voru víða ekki kosnir skv. starfsreglum um kosningu biskups og vígslubiskupa og því ónýttist allt en úr því þarf að bæta fyrir 12. janúar 2018.

Sjá bókun kjörstjórnar

Bréf til þeirra sem kjósa vígslubiskup

Ég hef sent stuttan texta til hluta þeirra kjörmanna sem kjósa vígslubiskup og bæti því hér við svo fleiri sjái sem mega kjósa.
Ég, ásamt konu minni, var á förum í pílagrímagöngu á Spáni snemma morguns þess 27. september sama dag og kynningarfundur átti að vera í Háteigskirkju. Ekki var hægt að verða við þeirri beðni að flýta eða flytja þennan kynningarfund. Ég reiknaði með að sýna myndband sem ég hafði útbúið í stað kynningar. Hins vegar greip forsjónin inn í. Einn farþegi í breiðþotu WOW varð svo veikur að flugvélinni var snúið aftur til Keflavíkur eftir klukkustunda flug. Þar með féll öll plön síðar um daginn með flug frá París og gisting á Spáni. Við fórum því frá borði í Keflavík og töldum okkur betur stödd í Reykjavík en í París. Því gat ég mætt í Háteigskirkju en myndbandið er hér og geymir svar við þeim spurningum sem lagðar voru fyrir.
Bréf til AxelTilKjörmanna