Sálkönnun – jungian psychoanalysis -meðferð sálar

Ég hef verði í námi í sálgreiningu við CG Jung Instituttet í Kaupmannahöfn síðan febrúar 2018 Námslok veita inngöngu í International Association for Analytical Psychology (IAAP) og í dansk Psykoterapeutforening.
Ég lauk 60 ETCS í diplómanámi í sálgæslu við Endurmenntun HÍ árið 2014.
Ég hef þjónað sem prestur í þjóðkirkjunni síðan 1991 og gegni nú starfi héraðsprests Suðurprófastsdæmis frá 2010.
Ég hef góða aðstöðu í Eystra-Geldingaholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi til að taka á móti fólki.

Ef þú ert að leita leiða til að skilja sálina sem í þér býr dýpri skilningi,
ef þú ert að leita leiða til að greiða úr snúnum erfiðleikum þínum í tengslum við fólkið þitt,
ef þú er býrð við erfiðra lífs stöðu,
þá gætum við rætt saman í leit að leiðum til að öðlast dýpri innsýn í sjálfan þig og sambönd þín, er leiðir til langvarandi breytinga sem hjálpa þér að vaxa og dafna sem manneskja.
Saman göngum við á öruggan stað til að kanna meðvitundina sem býr í þér og skilja mynstrin sem hafa mótandi áhrif á líf þitt.

Viðtöl eftir samkomulagi. Gjald fyrir hverja 50 mínútna samtalsstund er 15.000 kr.

Axel Árnason Njarðvík
sími 8982935

Breiðabólstaðarprestakalli

Frá 1. september 2024 til 1. nóvember 2024 mun ég þjóna Breiðabólstaðarprestakalli.

Sóknarbörn Breiðabólstaðarprestakalls geta því leitað til mín um þjónustu eða viðtöl þessar vikur sem framundan eru. Sími minn er 856 1574 og yfirleitt aðgengilegur og svara eða hringi fljótt til baka. Netfang mitt er axel.arnason@kirkjan.is. Skrifstofa mín er á Hellu og eins í safnaðaarheimilinu við Stórólfshvolskirkju sem og heima í Eystra-Geldingaholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Víkurprestakall 2021-2022

Posted onOctober 31, 2021byaxels

Þann fyrsta október 2021 var ákvað biskups Íslands og prófastur Suðurprófastsdæmis að sr. Axel Árnason Njarðvík myndi gegna stöðu sóknarprests í Víkurprestakallinu frá og með 1. nóvember 2021. Þessi ráðstöfun gildir þar til nýr prestur verður ráðinn. Gert er ráð fyrir að auglýst verði eftir nýjum presti um leið og kirkjuþing afléttir ráðningarbanni en eins og er stendur það til 1. janúar 2022. Sími sr. Axels er 8561574. Netfang er axel.arnason@kirkjan.is og heimasíða www.axel.is.

Skálholtsprestakall 2021-2022

Við fráfalls sr. Egils Hallgrímssonar, sóknarprests Skálholtsprestakalls ákvað biskup Íslands og prófastur Suðurprófastsdæmis, þann 9. júní sl. að fela sr. Axel Á Njarðvík héraðspresti að taka við starfsskyldum sóknarprestsins í Skálholtsprestakalli. Sr. Axel mun því starfa sem sóknarprestur Skálholtsprestakalls að minnsta kosti til vors 2022. Sóknarbörn Skálholtsprestakalls eru því beðin að snúa sér til sr. Axels varðandi kirkjulega þjónustu. Starf safnaðanna verður með líku sniði og undanfarin ár og enn fremur messuhald sem og önnur störf. Sími sr. Axels er 8561574 og 8982935. Netfang er axel.arnason@kirkjan.is og heimasíða www.axel.is.

Næsta árið hjá héraðspresti

Ég er aftur farinn til prestsþjónustu í Selfossprestakalli eftir ákvörðun prófasts Suðurprófastsdæmis um að nýta héraðsprestsembættið að hálfu með þeim hætti. Sömuleiðis fær Skálholtsprestakall sem nemur fjórðungi af mér. Héraðsprestsembættinu er ráðstafað með þessum hætti til 1. júní 2019.
Ég þjónaði Selfossprestakalli frá ágúst 2012 til júlí 2015 eða í 36 mánuði. Annars bý ég Eystra-Geldingaholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem fyrr. Síðustu níu mánuð hef ég verið í námsleyfi sem reyndar fór svolítið forgörðum vegna vígslubiskupskosningarinnar í Skálholti sem tók lengri tíma en ætla mátti í upphafi.
Viðtalstímar -um frekari samtöl og viðtöl- hjá mér næsta árið eru milli 10 og 12 í síma 8561574 og netfangið er axel.arnason (hjá) kirkjan.is. Samtöl og frekari viðtöl eru því eftir samkomulagi og ég hef skrifstofuaðstöðu og móttökuaðstöðu í Selfosskirkju og reyndar heima.