Ég hef sent stuttan texta til hluta þeirra kjörmanna sem kjósa vígslubiskup og bæti því hér við svo fleiri sjái sem mega kjósa.
Ég, ásamt konu minni, var á förum í pílagrímagöngu á Spáni snemma morguns þess 27. september sama dag og kynningarfundur átti að vera í Háteigskirkju. Ekki var hægt að verða við þeirri beðni að flýta eða flytja þennan kynningarfund. Ég reiknaði með að sýna myndband sem ég hafði útbúið í stað kynningar. Hins vegar greip forsjónin inn í. Einn farþegi í breiðþotu WOW varð svo veikur að flugvélinni var snúið aftur til Keflavíkur eftir klukkustunda flug. Þar með féll öll plön síðar um daginn með flug frá París og gisting á Spáni. Við fórum því frá borði í Keflavík og töldum okkur betur stödd í Reykjavík en í París. Því gat ég mætt í Háteigskirkju en myndbandið er hér og geymir svar við þeim spurningum sem lagðar voru fyrir.
Bréf til AxelTilKjörmanna