Ég hef verði í námi í sálgreiningu við CG Jung Instituttet í Kaupmannahöfn síðan febrúar 2018 Námslok veita inngöngu í International Association for Analytical Psychology (IAAP) og í dansk Psykoterapeutforening. Ég hef nú þegar lokið 300 tímum í eigin sálgreiningu og 400 tímum með skjólstæðingum auk 100 tíma í handleiðslu. Nú er svo komið að ég hef heimild stofnunarinnar til að taka fólk í sálgreiningu undir leiðsögn.
Ég lauk 60 ETCS í diplómanámi í sálgæslu við Endurmenntun HÍ árið 2014.
Ég hef þjónað sem prestur í þjóðkirkjunni síðan 1991 og gegni nú starfi héraðsprests Suðurprófastsdæmis frá 2010.
Ég hef góða aðstöðu í Eystra-Geldingaholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi til að taka á móti fólki.
Ef þú ert að leita leiða til að skilja sálina sem í þér býr dýpri skilningi,
ef þú ert að leita leiða til að greiða úr snúnum erfiðleikum þínum í tengslum við fólkið þitt,
ef þú er býrð við erfiðra lífsstöðu,
þá gætum við saman með sálfræðimeðferð sem rís af grunni Jungs gefið þér tækifæri til að öðlast dýpri innsýn í sjálfan þig og sambönd þín, er leiðir til langvarandi breytinga sem hjálpa þér að vaxa og dafna sem manneskja.
Saman göngum við á öruggan stað til að kanna meðvitundina sem býr í þér og skilja mynstrin sem hafa mótandi áhrif á líf þitt.
Viðtöl eftir samkomulagi. Gjald fyrir hverja 50 mínútna samtalsstund er 15.000 kr.
Axel Árnason Njarðvík
sími 8982935
Category Archives: Uncategorized
Breiðabólstaðarprestakalli
Frá 1. september 2024 til 1. nóvember 2024 mun ég þjóna Breiðabólstaðarprestakalli.
Sóknarbörn Breiðabólstaðarprestakalls geta því leitað til mín um þjónustu eða viðtöl þessar vikur sem framundan eru. Sími minn er 856 1574 og yfirleitt aðgengilegur og svara eða hringi fljótt til baka. Netfang mitt er axel.arnason@kirkjan.is. Skrifstofa mín er á Hellu og eins í safnaðaarheimilinu við Stórólfshvolskirkju sem og heima í Eystra-Geldingaholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.